27.7.2009 | 17:44
Slúður, Svínaflensa og Jafnrétti...
Er að lesa grein í Hello blaði einmitt á þessu augnablaði og í þessu Hello blaði er grein um prinsinn Vilhjálm og kærustu hans Kötu. Ekkert merkileg grein svo sem og ég á auðvitað ekkert að vera að lesa um annarra manna líf. En já í þessari grein er nefnt það að þau munu kannski giftast á næsta ári sem er auðvitað gott og blessað nema hvernig það er orðað. Þetta er orðað þannig að hún Kata er búin að bíða í 8 ár eftir bónorði og núna þarf hún ekkert að bíða lengur, heldur getur sest að með manni sínum og búið til börn. Er ég sú eina sem sé e-ð athugavert við þetta? Kannski er hún ekkert búin að bíða eftir bónorði, kannski er hún bara búin að skemmta sér og gera e-ð skemmtilegt, eins og vera í námi og skoða heiminn. Getur ekki verið að hann hefur verið að bíða eftir að hún vilji giftast honum, nei kemur víst ekki til greina samkvæmt þessari grein. Það sem ég skil ekki af hverju er strax komist að þeirri niðurstöðu að hún vilji giftast helst á morgun og hrúga niður börnum?
Jæja svo ég komi mér nú að öðru máli, var að lesa um svínaflensuna og skoða hver einkenni hennar eru, komst að því að hiti, sárindi í hálsi, beinverkir og síðan ógleði/uppköst/niðurgangur væru helstu einkennin, en ef maður er bara með eitt eins og sárindi í hálsi þá er maður ekkert með svínaflensu er það?
Er að missa mið í bók sem heitir því óskemmtilega nafni Píkutorfan og fjallar þessi bók um mismun kynja í uppeldi, alveg hin fínasta lesning. Ég verð alltaf meiri og meiri var við hvernig bækur er ætlaðar stelpum og hvernig bækur er ætlaðar strákum, verð líka meiri var við að allar stelpur á leikskóla aldri eru í bleiku, og þær sem eru ekki í öllu bleiku eru þá í smá rauðu við eða fjólubláu, samt alltaf í pastel litum. Mér finnst í rauninni ekkert hræðilegt að stelpa er í öllu bleiku stundum eins og mér finnst ekkert við það að strákur er í öllu bláu, það er bara það að stelpur eru aldrei í bláu og strákar eru ekki í bleiku það er það sem truflar mig. Líka allar þessar prinssessu bækur sem kenna stelpum að vera sætar, góðar og hlýðin, það er samt alveg gott og blessað að kenna þeim síðustu tvo hlutina, en hvað kemur sætleiki málið við? Síðan lesa strákar sjóræningja bækur þar sem er ekkert kennt að vera góður og hlýðin, það er bara bók um sjóræningja og er í raun svona bók með upplýsingum. Mæli samt algjörlega með prinsessu bókum eftir Per Gustavsson, þær eru snilld, það eru bækur um prinsessur sem bjarga sér sjálfar og þurfa ekkert að prinsum að halda til að laga dekkið sem sprakk eða þá að þær bjarga prinsinum úr klóm drekans, því stundum þurfa prinsar hjálp. Það góða við þessar bækur er að þær eru öðruvísi, og ég held að við höfum bara mjög gott af því að breyta til og gera heiminn jafnari :)
Um bloggið
Valey Jökulsdóttir
Tenglar
Vinir
Þetta eru blogg síður vina minna :)
- Hrund
- Helga og Palli Blogg síða þeirra um lífið í danmörku
- Þórunn Þórunn í danmörku
- Lilja
- Valborg Þetta er tjáningar form Valborgar
- Gunnar
- Sigrún Ýr Þetta er tjáningar form Sigrúnar
- Dagný Björk veit nú ekki, hún er nú ekkert að standa sig
- Marta Það eru góðar myndir inni á þessari síðu
- Súsanna
- Ég og Guðjón
Fjölskylda
Tenglar fyrir fjölskyldu
- Jóhanna frænka í Ástralíu
- Ég og Guðjón
Ég sjalf
Gamla bloggið mitt :) þar er hægt að lesa ýmislegt.
Ef þér leiðist ;)
- b2 tenglasafn, ef þér leiðist
- mbl alltaf gaman að lesa fréttir
- Facebook endilega seldu sál þína
- Minngeimur minngeimur, kann ekkert á þetta samt
- Ég og Guðjón
Bækur
Bækur
bækur sem ég les
-
: Játningar Karlrembu (ISBN: 9789979920489)
Ágætis lesning mæli með að sem flestir lesi þessa bók.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.3.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 11582
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

stranger
svanae
ninetta
lebowski










Athugasemdir
ég á eftir að sakna þín svo mikið :/
takk fyrir síðast
p.s. kudos til þín fyrir góða stafsetningu, áður óséð fyrirbæri :D
valborg (IP-tala skráð) 8.8.2009 kl. 13:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.