Nýtt blogg

Ég og Guðjón erum með annað blogg saman þar sem myndir eru settar inn af okkur af lífi okkar hérna úti í Saint John. Ég mun samt halda áfram með þetta litla blogg en það verður áfram bara ég að tjá mig um tilveruna :)

 Bloggsíðan er í öllum tenglum hérna við hliðina á og hér: www.valjon.bloggar.is 

 

Kveðja Valey :)


Dagar mínir...

Ég er komin aftur út til Kanada. Það er ágætt, leiðist smá hérna ekkert alvarlegt samt. Er bara búin að fá eina skólabók í hendurnar, svo það er bara það að hafa ekkert að gera á daginn. Reyndar fékk ég sjónvarpsstöðvar í fyrradag, svo er núna föst á einhverjum bíómyndastöðvum, það er samt mjög pirrandi að það eru auglýsingar sem lengja myndina um svona helming. Náði öllum prófunum og fékk þar af leiðandi full námslán, sem er mjög léttandi þá þarf ég ekki að hafa áhygjur af því lengur.

Er ekki búin að gera neit núna í vikunni nema hlusta á fyrirlestra og glósa. Líst mjög vel á þessa önn í mannfræði, líffræðilega mannfræðin er smá spes en mjög áhugaverð. 

Síðastliðin laugardag keyrðum við til Fredricton til að skoða hvort það væru til mannfræðibækur í bóksölunni þar. Fundum ekki bækurnar sem ég þarf en það er víst kennd mannfrði þar og síðan kynjafræði hérna í Saint John. Ef það væri ekki svona dýrt að vera í skóla hérna þá myndi ég reyna komast inn. Allavegana í fredricton fórum við í verslunarmiðstöð sem leit út fyrir að vera svona 3 búðir, fórum síðan inn og þetta var miklu stærra en verslunarmiðstöðin hérna kom smá á óvart. Hlakka ýkt til að geta sýnt Guðlaugu og Hauk hana. 

Á laugardagsmorgnum förum við oft á markaðin hérna, þar sem held tyrki er að sleja mat og kaupum hjá honum Hummus og jógúrtgúrku sósu. Það er samt smá erfit að koma sér á fætur og niður í bæ fyrir 12 á degi sem við meigum sofa út :P 

Ætli þetta sé ekki nóg í bili :)


Próf og fleiri próf

Er búin að fá algjört ógeð á þessum tveimur prófum, gekk alveg hörmulega í fyrsta prófinu. Það er líklega vegna prófkvíða, þar sem ég kom út úr prófinu og skildi þá spurningarnar en inní prófinu þá sat ég bara frosin. Vona að mér gangi mun betur á prófinu á morgun, er búin að læra helling og er orðin verulega þreytt á þessu, held ég kunni þetta alveg, núna er bara að vona að ég frýs ekki aftur í prófinu.

Finnst líka svo leiðinlegt að þegar kennararnir mínir fara yfir prófið þá bara voðalega tossi er þetta. Vona að það gerist ekki og þau taka tillit til kennara einkunnar minnar.

Fékk vinnu um jólin, byrjar 14, hlakka til. Ætla samt að vera geðveikur letingi eftir prófið á morgun og þangað til :P

Það er ekki mikið að frétta af mér, þar sem ég er búin að vera föst lærandi alla daga. Svo þetta verður bara lítil færsla :)


Bloggfærsla

Ég ákvað að það væri kominn tími á það að ég tjái mig hérna um líf mitt.

Kærastinn minn situr hérna á móti mér að útskýra fiðrildi eða það held ég. Ég átti líka að nefna að hann væri æðislegur svona þrisvar í færslunni, þetta var númer 1.

Ég er sem sagt flutt til Kanada, kom mörgum á óvart :P nei held reyndar ekki. Það er ágætt hérna, alveg yndælis fólk, þessi bær er nú samt mjög lítill og þetta er svona smá Sönderborg all over. Nema að núna er ég með skemmtilegan félagskap. Það er mjög gaman að búa svona með einhverjum, get eldað á hverju kvöldi og lifað á einhverju öðru en popp kexi og pepsi max. Reyndar þá er ég en hætt að drekka pepsi max, held ég hafi aldrei haldið því út svona lengi, hef alltaf gefist upp eftir mánuð, held það er komið yfir hálft ár. Það hjálpar auðvitað að Guðjón kærastinn minn :P drekkur ekki lengur kók svo við erum bæði í þessu. Guðjón er æðislegur (ímynduð mörg hjörtu) númer 2.

Ég fer þrisvar í viku á einhverskonar enskunámskeið, svona ensku umræðuhópa. Þetta er mjög gaman, tölum saman í svona 1 til 1,5 tíma á ensku og eru margir allstaðar að þarna. Læri líka á menningu annarra sem mér finnst gaman. Þetta þjálfar enskuna mína mikið, ég get núna talað mun auðveldari við fólk á ensku :P

Námið mitt gengur vonum framar. Ég held ég er með um 8 í meðal einkunn, reyndar þá fer Guðjón vel yfir hvert verkefni mitt og lætur mig laga þau grimmt. Er mjög ánægð með það því ég held annars að þau væru mjög slæm. Mig vantar víst mikinn orðaforða og málfar mitt er því mjög slæmt. Ég reyni samt og reyni, kem innihalda verkefnanna samt ágætlega til skila, ég er víst ágæt í því.

Jæja þetta er orðin einhver langloka :P ætla að tjá mig oftar hér samt, skiptir ekki máli hvort fólk lesi þetta :) já og Guðjón er æðislegur :*:*:*:*:*:*? ?? ?? ?? ?? ?? ?? ?? ?? ?? ?? ?? ?? ? númer 3.

Tek fram áður en fólk held ég er klikkuð þá var þetta Guðjóni  sem vildi fá kissukarla og hjörtun líka :P 


Kanada 3 hluti...

Þarf að fara að nefna þessar færslur e-ð meiri grípandi.

Jæja, þá er það lýsing gærdagsins sem var næst heitasti dagur ársins, þar sem heitasti er í dag 30°C og ég er ekki búin að svitna svona mikið frá því í Evrópu reisunni minni.

Byrjuðum daginn á að fara í stóra flotta garðinn hérna fyrir ofan, tókum myndavélina hans Gaua með þar sem við ætluðum að ná betri myndum af dádýrum og íkornum. Því miður vorum við smá óheppinn, myndavélin var næstum batteríslaus og við sáum enginn dýr, en tókum samt smá myndir af góða verðinu, þær verða hérna í Kanada myndaalbúminu við hliðina á.

Ströndinn

Eftir þennan massíva heita göngutúr fórum við í grillveislu til próffesorsins hans Gauja. Hefðirnar hér eru víst aðeins öðruvísi en heima, hér er venjulegt að próffesorinn bjóð manni heim og öllum hinum nemendum sínum, og haldi kveðjuveislu fyrir einn sumar nemann. Kynntumst nokkrum sem er mastersnemar og doktorsnemar í líffræði.

Síðan komum við heim og þar var önnur grillveisla, þar var verið að grilla 2m Styrju, bragðast mjög líkt og Steinbítur eða Skötuselur. Þar var verið að steggja ungan mann og allir frekar mikið í glasi, límdu greyið manninn upp í tré og hentu vatni yfir hann. Þar sem Moskító flugur eru nætur dýr, er ég ekkert voðalega hlynnt því að vera úti, er komin með bit útum allt.

Í dag fórum við til Fredrickton, fórum reyndar vitlausa leið og þar af leiðandi tók ferðin 3 tíma í staðinn fyrir einn og hálfan. En þar sem við lítum alltaf á bjartar hliðar, þá getum við þó allavega sagt hafa séð alla sjávarhliðina niður að landamærum bandaríkjanna. Landsvæðið þarna er líka alveg ótrúlega flott, þótt við tókum nú engar myndir af því.

Var ég búin að segja frá íbúðinni sem við erum næstum búin að fá? lítil 45 fm íbúð, 2ja herbergja, með stærsta ísskáp sem ég hef séð og uppþvottavél (algjört möst að mati Guðjóns). Hún er líka staðsett í notalegu hverfi rétt hjá háskólanum, svo ef bíllinn bilar (sem við ætlum að fá okkur) þá er alltaf hægt að labba :P

   


Kanada annar hluti

Það er risastór garður hérna fyrir ofan bæinn, sem við kíktum á í gær, hann var hvort eð er á leiðinni að íbúðum sem við ætluðum að skoða. Við sáum Jarðíkorna, ýkt sætur, náðum samt ekki mynd af honum, þar sem við vorum bara með myndavélina mína og sú myndavél er ekki góð í að zooma og það endaði á að við tókum mynd af steinahrúgu. Við sáum líka dádýr, náðum að taka nokkrar lélegar myndir af því sem eru hérna. Þessi garður er líka með nokkurskonar húsdýragarði, tennisvöllum, tjaldsvæði, strand aðstöðu og fullt af gönguleiðum, þar sem sú lengsta er 7 km. Svo ef einhver vill koma í kraft göngu í fallegu útsýni, þá mæli ég með að heimsækja okkur :) dádýr

Þessi hús sem við skoðuðum voru pínu grunsamleg, eitt var með tveimur stórum löggubílum fyrir framan og fullt af svona "redneck" útlítandi liði fyrir utan, við krossuðum þessa íbúð bara af listanum. Hin var svo sem allt í lagi, en ætlum að skoða aðrar íbúðir fyrst og sjá til með hana.  

Dagblaðið hérna í bænum er líka ágæt, keyptum eitt eintak í gær útaf íbúðar auglýsingum, en  þær virtust frekar ódýrar og í úthverfum eða slumma hverfum. Þessi slumma hverfi koma hérna inn á milli, þar sem húsin eru í niðurníðslu og lök sem gardínur. En aftur á mót var þetta blað fínt, öll síðan aftan á var þakinn myndasögum, og síðan voru léttar krossgátur, súdókú og aðrar þrautir. Skemmti mér konunglega yfir þessu.

 Hann Guðjón er orðin mjög bæklaður á fætinum sínum, svo við erum bara hangandi heima í dag, sem er svo sem fínt því það er mjög heitt úti, eiginlega ekki gott að labba í þannig. en við förum samt út með hundinn á eftir sem býr hérna í kastalanum. Þessi Kastali er risa stór, mamma myndi fíla sig í botn í því. Þetta er á tveimur hæðum, það eru 4 svefn herbergi, 4 baðherbergi, þar af eitt inní herberginu okkar og eitt inní öðru herbergi, síðan eitt á svefnherbergisganginum og síðasta niðri við hliðina á eldhúsinu en samt inní þvottahúsinu. Síðan eru 3 stofur, tvær þeirra með arin, ein borðstofa þar sem ein stofan liggur frá og hinar tvær eru saman með sitthvorn arininn. Síðan eru svona miljón skápar sem eru með herbergishurðum á og ég er alltaf að uppgötva e-ð nýtt. Það er ekkert rosalega gott að vera á neðri hæðinni þegar það er komið myrkur, því þá minnir þetta hús ótrúlega mikið á hryllingsmynd. 

En já það er allt gott að frétta af okkur hérna, þarf að fara að kaupa mér annað dagblað og viðra hundinn :D

Guðjón

  Þessar myndir eru í myndaalbúmi sem heitir Kanada og þar eru fleiri myndir :D


Kanada

Kastalinn Þetta er svo guli kastalinn sem við gistum í þangað til við finnum okkur íbúð. Síðan stendur Gaui þarna stoltur fyrir framan.

Það er dálítið vesen hérna að vera ekki á bíl, er orðin algjörlega uppgefin í fótunum og nenni engan veginn að standa upp í augnablikinu, síðan er þessi bær ekki beint hannaður fyrir fólk sem labbar, heldur aðallega fyrir bíla.

Við höfum núna skoðað eina íbúð, þetta bílaleysi heftir okkur dálítið í þessu, við getum heldur ekki keypt bíl fyrr en við höfum fengið íbúð, svo þetta er smá vítahringur. en við redduðum því og fáum bílaleigubíl á fimmtudaginn til að auðvelda þetta allt saman.

Ferðin gekk ágætlega, fundum strax bílaleiguna og lentum síðan strax á réttri hraðbrautinni og síðan 200 km síðar runnum við í hlað hjá gistihúsinu, gistum þar um nótina og síðan morguninn eftir lá ferðinni beint til Saint John. Lentum ekki einu sinni í vandræðum með að finna kastalann, því að gatan sem hann er á er bein leið af afleggjaranum af Hraðbrautinni. Síðan fórum við í smá bíltúr um borgina, týndumst nokkrum sinnum, einu sinni mjög illa, en við redduðum okkur eins og ekkert var, enda er þessi borg á stærð við Reykjavík. Skiluðum bílnum í dag og þá föttuðum við að vegalengdirnar eru frekar langar og það er ekki alveg hægt að fara að skoða íbúðir um allan bæ þannig. Náðum samt að redda síma og Kanadísku númeri handa Gauja sem ég mun muna því það minnir mjög mikið á mitt íslenska. Fórum líka í bankann að redda reikningi, íslenskir bankar eru mjög öðruvísi miðað við útlenska, það hef ég alla veganna komist að. Skoðuðum líka bókasafnið hérna í bænum, ég þarf greinilega að ræða við bæjarbókavörðinn í bókasafninu mínu, þetta er mun sniðugra á mörgum sviðum ;) Skrifa meira um ferðina á morgun :D eða hinn :p

Til að snúa mér að öðru, hefurðu ekki séð hvað bandaríska steríó týpan er feit og hreyfir sig ekki neitt? Ég varð einmitt vitni af þessu fyrstu tvo dagana sem ég var hér, mikið af feitu fólki, var byrjuð að hafa smá áhyggjur af þessu, að við værum að fara að flytja í middle of know where New Brunswick og að auka bara feit fólk... Komst síðan að því í dag að feita fólkið er auðvitað á skyndibitastöðunum um helgar alla veganna og síðan kemur venjulega fólkið fram á virkum dögum, og á venjulegum stöðum :D Tek samt fram að það er óvenju mikið að OF feitu fólki hérna. Þarf greinilega að passa mig á þessu þegar ég flyt út. 


Slúður, Svínaflensa og Jafnrétti...

Er að lesa grein í Hello blaði einmitt á þessu augnablaði og í þessu Hello blaði er grein um prinsinn Vilhjálm og kærustu hans Kötu. Ekkert merkileg grein svo sem og ég á auðvitað ekkert að vera að lesa um annarra manna líf. En já í þessari grein er nefnt það að þau munu kannski giftast á næsta ári sem er auðvitað gott og blessað nema hvernig það er orðað. Þetta er orðað þannig að hún Kata er búin að bíða í 8 ár eftir bónorði og núna þarf hún ekkert að bíða lengur, heldur getur sest að með manni sínum og búið til börn. Er ég sú eina sem sé e-ð athugavert við þetta? Kannski er hún ekkert búin að bíða eftir bónorði, kannski er hún bara búin að skemmta sér og gera e-ð skemmtilegt, eins og vera í námi og skoða heiminn. Getur ekki verið að hann hefur verið að bíða eftir að hún vilji giftast honum, nei kemur víst ekki til greina samkvæmt þessari grein. Það sem ég skil ekki af hverju er strax komist að þeirri niðurstöðu að hún vilji giftast helst á morgun og hrúga niður börnum?

Jæja svo ég komi mér nú að öðru máli, var að lesa um svínaflensuna og skoða hver einkenni hennar eru, komst að því að hiti, sárindi í hálsi, beinverkir og síðan ógleði/uppköst/niðurgangur væru helstu einkennin, en ef maður er bara með eitt eins og sárindi í hálsi þá er maður ekkert með svínaflensu er það?

Er að missa mið í bók sem heitir því óskemmtilega nafni Píkutorfan og fjallar þessi bók um mismun kynja í uppeldi, alveg hin fínasta lesning. Ég verð alltaf meiri og meiri var við hvernig bækur er ætlaðar stelpum og hvernig bækur er ætlaðar strákum, verð líka meiri var við að allar stelpur á leikskóla aldri eru í bleiku, og þær sem eru ekki í öllu bleiku eru þá í smá rauðu við eða fjólubláu, samt alltaf í pastel litum. Mér finnst í rauninni ekkert hræðilegt að stelpa er í öllu bleiku stundum eins og mér finnst ekkert við það að strákur er í öllu bláu, það er bara það að stelpur eru aldrei í bláu og strákar eru ekki í bleiku það er það sem truflar mig. Líka allar þessar prinssessu bækur sem kenna stelpum að vera sætar, góðar og hlýðin, það er samt alveg gott og blessað að kenna þeim síðustu tvo hlutina, en hvað kemur sætleiki málið við? Síðan lesa strákar sjóræningja bækur þar sem er ekkert kennt að vera góður og hlýðin, það er bara bók um sjóræningja og er í raun svona bók með upplýsingum. Mæli samt algjörlega með prinsessu bókum eftir Per Gustavsson, þær eru snilld, það eru bækur um prinsessur sem bjarga sér sjálfar og þurfa ekkert að prinsum að halda til að laga dekkið sem sprakk eða þá að þær bjarga prinsinum úr klóm drekans, því stundum þurfa prinsar hjálp. Það góða við þessar bækur er að þær eru öðruvísi, og ég held að við höfum bara mjög gott af því að breyta til og gera heiminn jafnari :)


Lolita stíllinn

Er Búin að skoða stíl sem heitir Lolita, er eiginlega búin að skoða hann í svona ár, féll algjörlega fyrir þessum stíl. Ætla þess vegna að deila þessu með umheiminum, aðalega vegna þess að ég get ekki birt myndir með greinum á huga :) 

 

Lolita:Ég held að stíllinn komi frá héræði sem heitir Kansai í japan og er frá 1970 en er núna aðalega í Tokyo í hverfi sem heitir Harajyuku. Þar er fullt af allskonar stílum og þar á meðal Lolita, þetta hverfi er þekkt fyrir undarlega fatastíla meðal fólks sem hangir þarna, hef mikin áhuga á að skoða þetta, mæli með bókinni fresh fruits, þar eru fullt af myndum af allskonar stílum. Lolita saman stendur af fötum í Viktóríutímanum og dúkkustíl blandað saman eða barnafötum frá viktórítímanum. Til eru nokkrar gerðir af þessum stíl þ.e Sweet Lolita, Punk Lolita og Goth Lolita síðan er líka classic Lolita. 

Classic Lolita: Ég því miður veit ekki mikið um þann stíl nema hann er  á milli goth og sweet þ.e svartur, munnstur eru minni áberandi en í sweet, ekki notað jafn mikið af fylgihlutum og í hinum stílunum, er fágaðri og einfaldari.

Sweet Lolita samanstendur af tjull pilsi, bol, hnéháum sokkum og kannski peysu yfir, sweet1 sætum litum eins og bleikum eða rauðhvítu/bláhvítu köflótt, fylgihlutir eru sólhlíf eða veski í stíl við fötin, slaufa í hárinu og sætir skór í stíl. Í raun eins og dúkka, Lísa í Undralandi er mikið notuð sem grunnhugmynd, ávextir, nammi og gömul ævintýri eru líka notuð sem hugmyndir með sweet Lolita fötum. Það finnst líka alveg sweet lolita í dökkum fötum, það er bara ekki jafn algengt og mér finnst þá líka eins og að þá ertu komin yfir í classic eða goth.

Punk Lolita er í raun bara oftast goth/classic lolita með punk ívafi sem varð síðan af eigin punklolita.jpg stíl. Dæmi um um Lolita punk er þessi týpíski skólabúningur sem er búið að tæta og bæta við, sem sagt köflótta pilsinu, djarfari skirtu, hnésokkum, hálsbindi, nælur og stígvél. Punk Lolita er líka stundum í kjól, en það er bara mun sjaldnar. Hárgreiðslur eru oftast djarfari og í djarfari litum eins og gerist í Punk stílnum. Síðan eru litirnir dekkri, svartur og rauður mikið notaður, strípur í hári og mikið máluð eins og í goth stílnum.

 

 

 

Goth Lolita finnst mér líkari Viktorístílnum heldur en hinir stílarnir. Þessi stíll er pínu líkur vestræna Goth stílnum blandaður með Lolitu, bara þessi dramatíska málling sem er þekkt gothlolita.jpg hér er ekki í Goth Lolita þar er bara dramatísk augnmáling og rauður varalitur eða dökkur. Stíllinn saman stendur af kjól sem nær niður að hnjám eða styttri, er svartur eða í dökkum litum, efrihlutinn á kjólnum er oft í lífstykkjastíl, síðan er restin mjög líkt sætu Lolitu, bara mun dekkri, svart aðalega notað og stundum dökkraut og fjólublátt með. Fylgihlutir eru til dæmis veski í leðurblöku líki eða líkkistuklíki.  


Sæll/Sælar

Hvernig hefuru það í dag?

 Ég hef það fínt :)


Næsta síða »

Um bloggið

Valey Jökulsdóttir

Bla bla

Höfundur

Valey Jökulsdóttir
Valey Jökulsdóttir

Ég er bara stelpa (23 ára samt) að tjá mig um líf mitt og tilfiningar...

Feb. 2010
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28            

Nýjustu myndir

  • Ströndinn
  • dádýr
  • Dádýr
  • Guðjón
  • við

Bækur

Bækur

bækur sem ég les

  • Lars Einar Engström: Játningar Karlrembu (ISBN: 9789979920489)
    Ágætis lesning mæli með að sem flestir lesi þessa bók.
    ***

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.2.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 11497

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband